Þátturinn Tónlistin er kominn til baka úr stuttu fríi.

Í þættinum í dag verður mest spiluð ný tónlist. Nöfn flytjenda í dag eru meðal annara Ava Max, ZÖE, Kusk og Óviti, Davitt Guetta, Sváfnir Sigurðarson, Ása Elínar, Ólafur Kram og fleiri.
Meira að segja verður spilað nýtt lag með norsku hljómsveitinni a-ha.

Þátturinn er á dagskrá í dag frá klukkan 13:00 til 14:00 og verður sendur út í beinni útsendingu frá studio III í Sandefjord í Noregi á FM Trölla og út um allan heim þar sem netsamband er í boði á trölli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com
Einnig fást þessu öpp (smáforrit) í Apple TV og önnur snjall-sjónvarpsbox.

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.