Kiwanisklúbburinn Skjöldur í samstarfi við Björgunarsveitina Stráka og 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar standa fyrir árlegri Þrettándabrennu og flugeldasýningu á Siglufirði, mánudaginn 6. janúar nk.

Blysför með nemendum út 10. bekk grunnskólans fer frá Ráðhústorginu kl. 17:30 og þaðan verður gengið að brennustaðnum. Kveikt verður í brennunni kl. 18:00 og fylgir henni glæsileg flugeldasýning.

Allir eru hvattir til að mæta í grímubúningum til að skapa enn skemmtilegri stemmingu og kveðja jólin með glæsibrag.

Eftir brennu, frá kl. 19:00 til 20:30, verður barnaskemmtun Kiwanis í formi grímuballs á Kaffi Rauðku.