Grunnskóli Fjallabyggðar auglýsir eftir þroskaþjálfa til starfa.
Um er að ræða 75% stöðu með möguleika á stækkun í 100%
Grunnskóli Fjallabyggðar er heildstæður grunnskóli með rúmlega 200 nemendur.
Starfsstöðvar eru tvær. Í Ólafsfirði eru nemendur 6.-10. bekkja en á Siglufirði eru nemendur 1.-5. bekkja.
Í Fjallabyggð búa 2000 íbúar. Nánari upplýsingar um Fjallabyggð má finna á www.fjallabyggd.is
Gildi skólasamfélagsins eru: Kraftur – Sköpun – Lífsgleði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Kemur að þjálfun einstaklinga
- Veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila
- Kemur að gerð einstaklingsnámskráa
- Stjórnar og skipuleggur teymisfundi
- Kemur að daglegri umsjón og skipulagi í sérhæfðri þjónustu
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Starfsréttindi þroskaþjálfa
- Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi
- Reynsla af skipulagi og teymisstjórnun
- Áhersla er lögð á lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Þroskaþjálfafélags Íslands og launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 19. október.
Umsóknir, ásamt ferilskrá og upplýsingum um umsagnaraðila berist á netfangið erlag@fjallaskolar.is
Heimasíða skólans er http://grunnskoli.fjallabyggd.is og sími 464.9150.
Nánari upplýsingar veitir Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri í síma 865.2030 eða í gegnum netfangið erlag@fjallaskolar.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Fjallabyggð