Nú þegar haustar er þörf á að fara yfir ljósastaura sem eru í eigu Húnaþings vestra.

Í næstu viku er reiknað með að fara eftirlitsferð og laga ljósastaura á Hvammstanga og Laugarbakka.

Ef ljósastaurar eru bilaðir við dreifbýli þá þurfa íbúar að senda inn bilana tilkynningu.

Til þess að senda inn tilkynningu þarf að fylla út eyðublað sem finna má á heimasíðu Húnaþings vestra (hunathing.is) eða smella hér.