Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar sendur beint út frá Siglufirði, kl 13.00 – 15.00. Þátturinn hefir verið í sumarfríi undanfarið.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum og að þessu sinni verður útsendingin frá Siglufirði, en þar dveljast hellisbúarnir um þessar mundir.

Þau spjalla um allt mögulegt og ómögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og leika lög úr ýmsum áttum.

Í dag verða leikin ný lög víða að og uppskrift vikunnar verður á sínum stað.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is