Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2021

Íslensku menntaverðlaunin er viðurkenning fyrir framúrskarandi skólastarf, menntaumbætur og þróunarverkefni. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt í þremur aðalflokkum: 

  1. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
  2. Framúrskarandi kennari. Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
  3. Framúrskarandi þróunarverkefni. Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- eða frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum og hafa ótvírætt mennta- og uppeldisgildi.

Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.

Tilnefningar skal senda með því að nýta þessi skráningarform:

Tilnefningar skulu hafa borist fyrir 1. júní ár hvert.

Eru viðtakendur þessa tölvupósts hvattir til að senda inn tilnefningar og vinsamlegast beðnir um að kynna verðlaunin sem víðast, til dæmis á heimasíðu og Facebooksíðu sveitarfélaga.

Sjá nánar: http://skolathroun.is/menntaverdlaun/