Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar sendur út frá Studio 1, kl 13.00 – 15.00 GMT
Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum, búa þau um stundarsakir í Hofsósi og verður þátturinn sendur beint út þaðan.
Þau hjónin spjalla um allt mögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og spila létt lög úr ýmsum áttum.
Í dag verður leikið nýtt íslenskt lag sem var að koma út og fullt af annarri tónlist.
Uppskrift vikunnar verður á sínum stað eins og alltaf.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is