Tómas Welding og Pálmi Ragnar Ásgeirsson halda samstarfi sínu áfram og voru að gefa út lagið Arcade. Þeir hafa unnið saman að síðustu lögum Tómasar, Cop Car, Go The Distance og Lifeline.

Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar, sem er á dagskrá FM Trölla alla sunnudaga kl. 13 – 15.

Lifeline sem kom út í febrúar á þessu ári hefur notið mikilla vinsælda og hefur verið spilað rúmlega 6 milljón sinnum á Spotify.

Um höfundinn

Tómas Welding er ungur leikstjóri sem dvaldi löngum stundum bakvið myndavélina og tók upp tónlistarmyndbönd þangað til hann ákvað sjálfur að prófa að stíga inn í rammann og fara að semja tónlist.

Hann hefur nú þegar gefið út nokkur lög sem hafa verið vinsæl á streymisveitum, má þar nefna Goodbye sem hann gerði ásamt September og eins og áður kom fram, Cop Car, Go The Distance og Lifeline sem hann vann með Pálma Ragnari Ásgeirssyni úr StopWaitGo og Rok Records.