
Kristín og Gunnar Smári
Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni frá kl 13.00 – 15.00. Sent verður beint frá Hvammstanga og Siglufirði.
Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum. Að þessu sinni verður Gunnar á Hvammstanga en Kristín á Siglufirði og fær góðan gest í þáttinn.
Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum eins og þeirra er von og vísa.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is