Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu frá Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.
Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum, Andri Hrannar leggur þættinum lið og sér um kaffið.
Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum.
Sérstakur gestur þáttarins verður Birgitta Ósk Pétursdóttir, sem búsett er á Kanaríeyjum. Birgitta, sem er kraftmikil ung kona, á og rekur eigið fyrirtæki þar ytra, sem nefnist Nordicway Real Estate.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is