Tómas Welding hefur gefið út lagið Taste.

Lagið er unnið í samstarfi með Pálma Ragnari Ásgeirssyni og verður leikið á FM Trölla í dag, í þættinum Tíu Dropar, sem er á dagskrá á sunnudögum kl. 13 -15.

Tómas og Pálmi hafa unnið saman að síðustu lögum Tómasar, Cop Car, Go The Distance og Lifeline með góðum árangri. Lagið Lifeline er nú komið með yfir 20 milljón spilanir á streymisveitunni Spotify. 

Um Tómas Welding

Tómas Welding er ungur leikstjóri sem dvaldi löngum stundum bakvið myndavélina og tók upp tónlistarmyndbönd þangað til hann ákvað sjálfur að prófa að stíga inn í rammann og fara að semja tónlist. Hann hefur nú þegar gefið út nokkur lög sem hafa verið vinsæl á streymisveitum, má þar nefna Goodbye sem hann gerði ásamt September og eins og áður kom fram, Cop Car, Go The Distance og Lifeline sem hann vann með Pálma Ragnari Ásgeirssyni úr StopWaitGo.

Taste á Spotify

Flytjandi:: Tómas Welding
Heiti lags:: Taste
Útgefandi:: Alda Music ehf.
Höfundar lags og texta:: Tómas Welding og Pálmi Ragnar Ásgeirsson