í Menntaskólanum á Tröllaskaga er í undirbúningi að nokkrir nemendur og tveir kennarar leggi loft undir væng og bregði sér til Istanbúl, fjölmennustu borgar Tyrklands. Tilefnið er boð Ömer Cam drengjamenntaskólans í Asíuhluta borgarinnar.
Sigurður Mar, listgreinakennari hefur kynnt sér allar aðstæður á þessum slóðum og mun fylgja nemendum til Istanbúl ásamt Karólínu Baldvinsdóttur, list- og raungreinakennara. Í gær kynntu þau samstarfsfólki sínu tyrkneska tedrykkjusiði í morgunkaffinu.
Skólastjórinn í Ömer Cam leysti Sigurð Mar út með tesetti og öðrum búnaði til tedrykkju er þeir kvöddust á dögunum. Tyrkneski skólin er í glænýju húsi og aðbúnaður þar allur hinn besti. Nemendur eru um 320, þar af um 280 á heimavist.