Umhverfisdagar Skagafjarðar verða haldnir dagana 15. – 16. maí nk. Íbúar, fyrirtæki og félagasamtök í Skagafirði eru hvött til að taka höndum saman, tína rust, taka til og fegra í sínu nærumhverfi og umfram allt, njóta umhverfisins.

Skemmtilegur áskorendaleikur er hafinn milli fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka þar sem aðilar fara út og tína rusl í kringum sig, setja mynd af sér á samfélagsmiðla og skora á önnur fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök að gera slíkt hið sama. Áskorendakeppni fyrirtækja og félagasamtaka stendur yfir alla þessa viku.

Merkja þarf myndina með myllumerkinu #umhverfisdagar20 og mun sveitarfélagið deila áskorunum á facebooksíðu sveitarfélagsins.

Dagskrá umhverfisdaganna:

Áskorendakeppni stendur yfir alla vikuna.

FÖSTUDAGUR 15. MAÍ – HAFNA- OG FJÖRUHREINSUN

Tökum höndum saman og hreinsum við hafnarsvæði og strendur í Skagafirði

LAUGARDAGUR 16. MAÍ – NJÓTUM UMHVERFISINS

Íbúar eru hvattir til að hreinsa til og fegra sitt nærumhverfi og nýta einnig daginn til þess að njóta umhverfisins, t.d. fara í göngu eða fuglaskoðun.

Hvetjum við alla sem fara út að plokka að taka mynd af sér og deila á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #umhverfisdagar20. Passa þarf að færslan sé opin svo hægt sé að sjá hana og deila henni.

Búið er að gera myndaalbúm þar sem stefnt er að því að bæta við myndum alla vikuna.
Myndaalbúmið má nálgast hér.