Afhending umhverfisviðurkenninga Sveitarfélagsins Skagafjarðar fór fram í fimmtánda sinn í síðustu viku við hátíðlega athöfn í Húsi frítímans, en það er Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar sem hefur umsjón með útnefningu þessara viðurkenninga fyrir Sveitarfélagið.
Viðurkenningarflokkarnir sem koma til greina eru sjö talsins, en ekki er alltaf veitt verðlaun í öllum flokkum á sama ári.
Flokkarnir eru:
- Sveitabýli með búskap
- Sveitabýli án búskapar
- Lóð í þéttbýli
- Lóð við fyrirtæki
- Lóð við opinbera stofnun
- Snyrtilegasta gatan
- Einstakt framtak
Í ár voru veittar sjö viðurkenningar í sex flokkum, en þá hafa verið veittar 94 viðurkenningar á 15 árum.
Býli með búskap sem hlaut viðurkenninguna í ár er Hátún 1. Þar eru eigendur Gunnlaugur Hrafn Jónsson og Helga Sjöfn Helgadóttir.
Býli án búskapar sem hlaut viðurkenninguna í ár er Syðra-Skörðugil. Þar eru eigendur Ásdís Sigurjónsdóttir og Einar E. Gíslason, sem lést fyrir skömmu.
Í ár voru veitt tvenn verðlaun í flokknum lóð í þéttbýli:
Drekahlíð 8, Sauðárkróki. Drekahlíð 8 er í eigu Ástu Ragnarsdóttur og Magnúsar Sverrissonar.
Brekkutún 4, Sauðárkróki. Brekkutún 4 er í eigu Margrétar Grétarsdóttur og Páls Sighvatssonar.
Lóð við opinbera stofnun sem hlaut verðlaun í ár er Hóladómkirkja. Það voru Laufey Guðmundsdóttir, formaður sóknarnefndar og organistinn Jóhann Bjarnason sem tóku við viðurkenningunni fyrir Hóladómkirkju.
Lóð við fyrirtæki sem hlaut verðlaun er Bændagistingin á Hofsstöðum. Eigendur þar sem og gestgjafar eru Elínborg Bessadóttir og Vésteinn Vésteinsson.
Að lokum var veitt viðurkenning fyrir einstakt framtak. Það voru hjónin Herdís Sæmundardóttir og Guðmundur Ragnarsson sem hlutu verðlaun í flokknum einstakt framtak. Þau stóðu að því að reisa minnisvarða um Hrafna-Flóka í mynni Flókadals í Fljótum sem vígt var árið 2012.
Sveitarfélagið Skagafjörður og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar óska öllum sem viðurkenningarnar hafa fengið til hamingju og þakkar þeim fyrir að láta umhverfið skipta sig máli.
Á myndinni eru verðlaunahafar umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2019. Mynd Páll Friðriksson.