Menningar- og viðskiptaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins.

Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðji með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf. (3. gr. reglna nr. 1290/2023 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla).

Til úthlutunar árið 2023 eru 7,5 m.kr.: 5 m.kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og 2,5 m.kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði. Höfuðborgarsvæðið nær yfir sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ, Seltjarnarnesbæ og Mosfellsbæ.

Umsækjendum er bent á að kynna sér ákvæði reglna nr. 1290/2023 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla.

Sjá umsóknareyðublað hér að neðan. Þegar það hefur verið fyllt út þarf að prenta það til undirritunar, skanna og senda ásamt umbeðnum fylgiskjölum Mikilvægt er að öll fylgiskjöl fylgi með umsókn. Umsóknir skulu berast á netfang menningar- og viðskiptaráðuneytis, mvf@mvf.is, fyrir miðnætti 17. desember 2023. Ef spurningar vakna um hvernig eigi að fylla umsóknina út er hægt að senda fyrirspurn á framangreint netfang.

Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 17. desember 2023.

Umsóknareyðublaðið má finna hér.

Mynd/aðsend