Bananabrauð
- 2 stórir þroskaðir bananar
- 50 gr smjör
- 2 egg
- 2 dl sykur
- 3 dl hveiti
- 1/2 dl mjólk
- 2 tsk lyftiduft
- 2 tsk vanillusykur
- 1 tsk kanill
Hitið ofinn í 175°. Bræðið smjörið og látið kólna aðeins. Hrærið egg og sykur þar til létt og ljóst. Bætið hveiti, lyftidufti, vanillusykri og kanil í deigið og blandið vel.
Bætið smjöri og stöppuðum banönum og mjólk í deigið og blandið vel. Setjið deigið í smurt brauðform (ég smyr oft formið og velti síðan haframjöli um það) og bakið í 40-50 mínútur.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit