Um 8.900 einstaklingar verða bólusettir á landsvísu í þessari viku, þ.e. dagana 1. – 7. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu sóttvarnalæknis sem birtir áætlun um bólusetningar hverrar viku á vef embættis landlæknis. Eins og fram kemur í tilkynningunni verða einstaklingar í aldurshópnum 80 ára og eldri bólusettir með 4.600 skömmtum af bóluefni Pfizer og 4.300 starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila verða bólusettir með bóluefni Astra Zeneca. Allt bóluefni sem fer í dreifingu í vikunni verður notað til að bólusetja fyrri bólusetningu.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) annast bólusetningar í sínu heilbrigðisumdæmi. Eins og fram kemur í tilkynningu HH verður öllum íbúum höfuðborgarsvæðisins sem eru fæddir 1939 eða fyrr boðin bólusetning sem fram fer í Laugardagshöllinni þriðjudaginn 2. mars og miðvikudaginn 3. mars. Nánari upplýsingar um framkvæmdina eru á vef HH.


Skoða á vef Stjórnarráðsins