Um 120 einstaklingar úr tíu heilbrigðisstéttum eru nú skráðir í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar.

Heilbrigðisstofnanir, einkum Landspítali, eru nú undir miklu álagi vegna Covid-19 og því þörf á frekari stuðningi við mönnun. Heilbrigðisráðuneytið hvetur heilbrigðisstarfsfólk sem vill og getur ráðið sig til tímabundinna starfa í heilbrigðisþjónustu ef eftir því er óskað, til að skrá sig í bakvarðasveitina.

Sérstaklega er óskað eftir hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum og læknum á skrá.

Mynd: Heilbrigðisráðuneytið