Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í skólaakstur Árskóla og Ársala 2020-2023. Áætlaður heildarakstur er um 23.600 km yfir samingstímabil.
Um er að ræða neðangreindan akstur:
- Eina reglubundna akstursleið fyrir Árskóla sem ekin er skv. tímatöflu sem nánar er skilgreind í útboðsgögnum. Akstur um 8000km yfir samingstímabil.
- Akstur innanbæjar á Sauðárkróki vegna skólaferða Árskóla og Ársala. Akstur um 300km yfir samingstímabil.
- Aðrar skólaferðir Árskóla og Ársala utan bæjarmarka. Akstur um 15.300km yfir samingstímabil.
Helstu magntölur reglubundins skólaaksturs Árskóla 2020-2023 er:
Lengd leiðar: 7,3 km pr. ferð.
Farþegafjöldi: Allt að 80 farþegar.
Fjöldi ferða á viku: 16 ferðir.
Fjöldi akstursdaga: Um 114 akstursdagar á hverju tímabili með frávikum.
Tímabil aksturs hvert skólaár: Frá 3. viku í október til og með 2. viku í mars. Öðrum ferðum skólaaksturs líkur svo í maí hvert skólaár.
Útboðsgögn eru til afhendingar án endurgjalds í afgreiðslu Sveitarfélagsins Skagafjarðar við Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki.
Þangað ber að skila tilboðum í lokuðu umslagi í síðasta lagi fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 1. júlí 2020 í merktu umslagi
SVEITARFÉLAGIÐ SKAGAFJÖRÐUR
SKÓLAAKSTUR ÁRSKÓLA OG ÁRSALA 2020-2023
TILBOÐ
Þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska í fundarsal á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Skagfirðingabraut 21.
Verklok eru áætluð vorið 2023.
Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Hér má sjá auglýsingu frá Útboðsvef.
f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjölskyldusviðs