Áhöfnin á varðskipinu Freyju hefur verið kölluð út að beiðni lögreglunnar á Vestfjörðum vegna slæmrar veðurspár og hugsanlegrar snjóflóðahættu um helgina.

Gert er ráð fyrir að skipið haldi úr höfn á Siglufirði um miðnætti og verði komið vestur á firði í fyrramálið.

Almannavarnir hafa vakið athygli á að veðurspá helgarinnar er ekki góð og hætta á að færð spillist og snjóflóðahætta myndist á Vestfjörðum.

Átján manna áhöfn skipsins, sem var á bakvakt, brást skjótt við kallinu og hóf þegar undirbúning fyrir brottför.

Miðað við veðurspá eru allar líkur á að skipið verði til taks á Vestfjörðum fram yfir helgi.