Vatnsdeigsbollur (18-20 litlar bollur)
- 2,5 dl vatn
- 125 g smjör
- 125 g hveiti
- 4 egg
Setjið vatn og smjör í pott og látið suðuna koma upp. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til massinn losnar frá pottinum. Kælið blönduna örlítið. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli. Notið tvær teskeiðar eða setjið deigið í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu. Bakið við 180° á blæstri í 18-20 mínútur. Ef bollurnar eru hafðar stærri er bökunartíminn lengdur.
Glassúr
- 100 g suðusúkkulaði
- 2 msk sýróp
- 2 msk rjómi
Bræðið allt saman í potti. Látið kólna aðeins og setjið yfir bollurnar.


Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit