Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri flytur erindið Vegir á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar: Geta Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrókur orðið eitt atvinnusvæði?. Í erindinu verða möguleikar á betri vegum milli bæjanna Blönduóss, Skagastrandar og Sauðárkróks skoðaðir. Betri vegir yfir Skagann milli þessara bæja fela óhjákvæmilega í sér jarðgangagerð.
Hlekkur á streymi hér neðar.
- Er kostur á því út frá vegalengdum og áreiðanleika nýrra vega að bæirnir verði eitt atvinnusvæði?
- Með láglendisvegi milli Blönduóss og Sauðárkróks vaknar einnig spurningin hvaða áhrif það hafi á vegakerfið í heild vestan Eyjafjarðar.
- Hvaða tækifæri felur það í sér?
- Er hægt að fara í gegnum Tröllaskagann líka?
- Hvernig ætti framtíðarvegakerfið á þessu svæði að vera?
Málstofan fer fram 4. nóvember kl. 12.10 – 13.00 í stofu M201 á Sólborg og einnig í streymi.
Zoom hlekkur: https://eu01web.zoom.us/j/63625208826%20%20#success