Hjólreiðafélag Akureyrar stóð fyrir Gangamóti Greifans föstudaginn 27. júlí. Blíðskaparveður var á mótsdegi og var hjólað frá Hótel Sigló á Siglufirði og endað við skíðahótelið í Hlíðarfjalli á Akureyri. Hjólað var í gegnum þrenn göng á leiðinni.
Keppt var í fimm flokkum og voru keppendur um 125 alls.
Hér að neðan koma myndir sem Ármann Hinrik tór af mótinu.
Myndir: Ármann Hinrik
Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir/Hjólreiðasamband Íslands