Anna Lind Björnsdóttir verkefnisstjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), hefur nú fasta viðveru alla mánudaga í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Siglufirði.
Þriðjudaga er föst viðvera á bæjarskrifstofunni á Dalvík og miðvikudaga til föstudaga er föst viðvera á bókasafninu Ólafsfirði.
Íbúar svæðisins eru hvattir til að nýta sér þjónustu ráðgjafa SSNE og hafa má samband við Önnu Lind og bóka tíma með tölvupósti annalind@ssne.is eða í síma 464 5406.