Kjörbúðin Siglufirði leitar að jákvæðum, ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra í fullt starf sem hefur gaman af mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur: 09.02.2019
Starfssvið:
- Ábyrgð á rekstri verslunar.
- Samskipti við viðskiptavini og birgja.
- Umsjón með ráðningu starfsmanna og almennri starfsmannastjórnun í verslun.
- Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum.
- Ábyrgð á birgðahaldi í verslun.
- Önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur:
- Marktæk reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi hjá verslunar- og/eða þjónustufyrirtækjum.
- Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Heiðari Róberti rekstrarstjóra Kjörbúða – heidar@samkaup.is