Vetrarsólstöður verða klukkan 22:23 í kvöld, föstudagskvöldið 21. desember 2018. Halli norðurhvels Jarðar frá sólu er þá mestur svo sól er lægst á lofti frá okkur séð og birtustundir fæstar. Eftir föstudaginn tekur sól að rísa á ný.
Ingvar Erlingsson fangaði magnaða birtuna sem var á Siglufirði í dag, 21. desember og leyfum við lesendum að njóta þess.
Á morgun, 22. desember, kemur sólin upp kl. 11:22 og verður svo næstu sjö daga, en fer að koma fyrr upp þaðan í frá.
Síðdegis fer daginn að lengja strax á morgun, þá um örfáar sekúndur og svo hraðar eftir það. Norðanlands er birtutími um klukkustund skemmri en syðra og í Grímsey, á heimskautsbaug, er sólarupprás í dag kl. 12:03.
Möndulhalli Jarðar er ástæða þess að þetta gerist. Jörðin er ekki upprétt í geimnum, heldur hallar snúningsás hennar miðað við sólbauginn, flötinn sem hún ferðast eftir í kringum sólina. Hallinn sjálfur breytist ekki og þess vegna halla norður- og suðurhvel að og frá sólu til skiptis.
Möndulhallinn veldur því að sólin er mishátt á lofti yfir árið. Þegar norðurhvel hallar að sólinni er sól hæst, í júní, en þegar norðurhvel hallar frá sólinni er sól lægst.
Myndir Ingvar Erlingsson
Heimild: Stjörnufræðivefurinn