Fjallabyggð sendir út í vikunni svarbréf til umsækjenda um menningar- eða frístundastyrki árið 2019.

Aldrei hafa fleiri umsóknir borist Fjallabyggð og eru tilgreindar styrktarupphæðir hærri en áður. Fjöldi styrktarumsókna fyrir árið 2019 var 79 en fyrir árið 2018 bárust 63 umsóknir.

Úthlutaðir styrkir til menningarmála fyrir árið 2019 hækkuðu um 8,7%, úr 7.500.000 í 8.150.000, styrkir til frístundamála hækkuðu um 12,8% úr 5.596.750 í 6.314.000 og styrkir vegna ýmissa mála hækkuðu um 20,2%, úr 2.100.000 kr í 2.525.000 kr.

Þá veitir Fjallabyggð árlega aðra styrki s.s. í formi frístundaávísana, afnota af íþróttamiðstöðvum og til ÚÍF vegna barna- og unglingastarfs. Heildarupphæð þessara styrkja hækkaði um 23% eða úr 31.314.240 í 38.532.600.

Samtals hefur Fjallabyggð aukið fjármagn til styrkja um 19% á milli ára.