Haldið verður upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt í Húnaþingi vestra þann 24. apríl nk.
Hátíðin hefst með skrúðgöngu frá Félagsheimilinu á Hvammstanga klukkan 13:00. Farinn verður hefðbundinn hringur með viðkomu á Sjúkrahúsinu. Að lokinni skrúðgöngu verður boðið til hátíðar í Félagsheimilinu. Þar afhendir m.a. Vetur konungur Sumardísinni veldissprota sinn. Börn úr fyrsta og öðrum bekk grunnskólans skemmta með söng.
Öllum er boðið upp á vöfflur og kakó. Á eftir verða spilaðar nokkrar umferðir í bingó þar sem glæsilegir vinningar verða í boði.
Foreldrafélag Leikskólans Ásgarðs eru umsjónaraðilar hátíðarinnar í ár.
Öll dagskráin er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir
Mynd/Birgir Karlsson