Á árinu 2025 voru áherslur í starfsemi Ljóðaseturs Íslands að breytast, með minni áherslu á daglega opnun en aukinni áherslu á sýnileika utan setursins og þátttöku í viðburðum þar sem ljóðlist var kynnt. Setrið tók áfram á móti hópum í heimsóknum og stóð fyrir viðburðum í húsnæði sínu.
Hægt er að skoða myndir frá síðasta ári: HÉR
Á árinu heimsóttu nokkrir skólahópar setrið, bæði frá öllum skólastigum og hópur frá dönskum lýðháskóla. Hóparnir fengu fræðslu um íslenska ljóðlist ásamt dagskrá með ljóðalestri, söng og kveðskap. Þá komu einnig fleiri hópar áhugasamra gesta í heimsókn.
Um tíu viðburðir voru haldnir á setrinu sjálfu á árinu. Þar á meðal var heimsókn marokkóska listakokksins Jaouad Hbib, sem flutti ljóð eftir Tómas Guðmundsson í franskri þýðingu, en forstöðumaður las sömu ljóð á íslensku.
Umhverfi setursins hefur tekið miklum framförum á síðustu árum og stóðu yfir áframhaldandi umbætur. Sumarið 2025 var haldinn útimarkaður til styrktar rekstri setursins og gekk hann vel. Fyrirhugaðir eru fleiri slíkir markaðir ásamt lifandi viðburðum með ljóðalestri, söng og kveðskap næsta sumar, auk þess sem ljóðmúr á að rísa á norðurgafli hússins.
Forstöðumaður setursins heimsótti nokkur dvalarheimili til að kynna starfsemina og flytja ljóð og lög. Þar á meðal heimsótti hann tvisvar ljóðaklúbb á dvalarheimilinu Hornbrekku á Ólafsfirði og flutti þar dagskrár. Þá flutti hann einnig ljóð og gamanvísur á ýmsum viðburðum.
Ljóðahátíðin Haustglæður var haldin í nítjánda sinn. Fjórtán viðburðir fóru fram víðs vegar um Eyjafjörð og alls sóttu um 450 manns dagskrána. Ungmennafélagið Glói og Ljóðasetur Íslands stóðu sameiginlega að hátíðinni. Samkvæmt tölum frá skipuleggjendum hafa á undanförnum 19 árum rúmlega 6.000 gestir sótt viðburði hátíðarinnar, um 220 viðburðir verið haldnir og fjölmörg skáld og listamenn komið fram.
Á facebooksíðu setursins voru birtar fréttir af starfseminni og auk þess kynningar á ljóðabókum í eigu setursins, meðal annars sjaldséðum eintökum og bókum árituðum af höfundum.
Ljóðasetur Íslands opnaði 8. júlí 2011. Frá upphafi hafa um 14.500 gestir heimsótt setrið, um 5.500 sótt viðburði utan þess, 175 hópar fengið þar fræðslu og skemmtun, um 400 viðburðir farið fram í húsnæði setursins og um 110 á öðrum stöðum. Þá hafa um 200 listamenn og skáld komið fram á viðburðum á vegum setursins.
Forstöðumaður setursins frá upphafi er stofnandinn Þórarinn Hannesson, sem annast daglegan rekstur, stýrir viðburðum, sér um viðhald hússins og önnur verkefni sem til falla.
Rekstur setursins hefur frá upphafi verið krefjandi. Fyrstu árin lagði forstöðumaður til fé úr eigin vasa en síðari ár hefur reksturinn gengið að mestu leyti án þess.
Helstu styrktaraðilar Ljóðaseturs Íslands eru Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra og Fjallabyggð, auk Vina ljóðsins sem greiða árgjöld til stuðnings starfseminni.
Mynd: af fb. síðu Ljóðaseturs Íslands



