Að undanförnu hafa komið upp mál hjá lögreglu þar sem vísbendingar eru um að framboð á ólöglegum lyfjum sé að aukast á svörtum markaði. Sérstök ástæða er til að vara við þessu. Fundist hafa töflur sem líta út fyrir að vera venjuleg lyf og eru jafnvel í umbúðum sem gefa það til kynna en við rannsókn reynist svo ekki vera. Þess háttar lyf geta verið sérstaklega hættuleg þar sem að þau eru ekki framleidd af löggildum lyfjaframleiðendum og því óvíst um styrkleika þeirra.

Nokkur dæmi eru um að lyfið Bromazolam hafi fundist í málum lögreglu en það lyf er einungis framleitt á svörtum markaði og því mjög varasamt. Efnið tilheyrir flokki benzódíazepínsambanda sem verka á miðtaugakerfið og hafa róandi og kvíðastillandi áhrif. Efnið var þróað um 1976 en var aldrei sett á markað. Helsta hættan við þessi benzódíazepínsambönd er að þau eru framleidd ólöglega og eru oft seld útlítandi sem raunveruleg lyf. En skammturinn og innihaldið getur verið breytilegt. Efnin eru sérstaklega hættuleg þegar þau eru tekin samhliða áfengi og öðrum lyfjum eins og ópíóíðum.

Lögreglan á Norðurlandi eystra beinir því til almennings að upplýsa fólk í nærsamfélagi sínu um hættur af slíkri lyfjanotkun.

Mynd/pixabay