
Vilborg Traustadóttir
29. janúar síðastliðinn opnaði Vilborg Traustadóttir einkasýningu sína „Ein í bland“ á Kaffi Mílanó í Reykjavík.
Sýningunni lýkur 31. mars og hefur gengið ljómandi vel og vakið verðskuldaða athygli.
Vilborg Traustadóttir, “Ippa” er fædd 11. janúar 1957.
Hún hefur numið olíumálun í Myndlistarskóla Kópavogs og sótt námskeið í Myndlistarskóla Arnar Inga Gíslasonar á Akureyri ásamt fleiri námskeiðum frá árinu 2007. Haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum.
Síðast með Kristínu Sigurjónsdóttir æskuvinkonu og listljósmyndara. Sú sýning var haldin í Bláa Húsinu á Siglufirði 2016.
Myndlistin á sýningunni „Ein í bland“ á Kaffi Mílanó er afrakstur námskeiðs í grafík á vegum Myndlistarfélags Kópavogs 2015 hjá Ingiberg Magnússyni sem hún hefur unnið áfram í blandaða tækni. „Ég hreinlega verð að koma þessum myndum frá mér og á sýningu svo ég geti haldið áfram í olíunni“ segir Vilborg kímin.

Grafík verk eftir Vilborgu
Sjá frekari upplýsingar um viðburðinn: Hér