Jú það passar. Þátturinn verður sendur út í beinni útsendingu frá studio III í bænum Moss í Noregi.

Nokkur ný lög verða spiluð. Þar á meðal nýtt lag frá Hrabbý, lagið Hjóm. Einnig Á móti sól með lagið Best.

Gömul lög og eitthvað spjall verður í boði svona eins og oft áður í þættinum.

Missið ekki af þættinum Tónlistin sem verður á dagskrá klukkan 13:00 til 14:00 á FM Trölla en einnig sendur út í mynd á vefsíðunni twitch.tv

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.