Hugmynd um fljótandi gufubað á Ólafsfjarðarvatni var kynnt á 911. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar í erindi frá Fjallgörðum Íslands. Samkvæmt erindinu er gert ráð fyrir að gufubaðið verði staðsett á vatninu fyrir landi Brekkulands.
Óskað var eftir afstöðu og umsögn sveitarfélagsins um hugmyndina í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Fram kemur að ekki sé gert ráð fyrir rennandi heitu vatni í gufubaðið heldur verði um svokallaða þurrgufu að ræða, þar sem gufan er framkölluð með hitara og vatni sem hellt er yfir heita steina.
Bæjarráð gerði ekki athugasemdir við hugmyndina fyrir sitt leyti, með þeim fyrirvara að óska þurfi umsagna frá Umhverfisstofnun og Veiðifélagi Ólafsfjarðar áður en málið verður tekið til frekari afgreiðslu.




