Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar unnin af T.ark arkitektum á 315. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar.

Markmið breytingartillögunnar er að útbúa nýja lóð fyrir verslunarkjarna sem mun m.a. hýsa nýja verslun Samkaupa hf. ásamt öðrum verslunum og/eða þjónustu.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt á opnum íbúafundi áður en hún verður auglýst með formlegum hætti skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sjá fylgiskjöl:

Mynd/Leó Ólason