Ross Edgley ætlar að synda 1.000 mílur á 100 dögum, í allt að 130 feta öldum og stundum samhliða háhyrningum. Hann tekur þátt í verkefninu Historic Open Water Challenge og er í samstarfi við Hafrannsóknastofnun, Matís og Háskóla Ísland m.a. til að stuðla að aukinni þátttöku almennings í vísindastarfi.

Bráðlega mun ofursjósundmaðurinn Ross Edgley reyna í fyrsta sinn að synda meira en 1.000 mílur (1.610 km) meðfram allri strandlengju Íslands. Samhliða mun hann stunda mikilvægar rannsóknir í tengslum við verndun hafsins. Ross leggur úr höfn í Reykjavík 16. maí og stefnir á að synda réttsælis hringinn í kringum Ísland (sjá tengil: HEIMSMETSUND: 1.000 mílur í kringum Ísland).

Ross leiðangurinn er meira en bara fyrsta þolraun sinnar tegundar í heiminum. Með sundleiðangri sínum hringinn í kringum Ísland er Ross einnig brautryðjandi rannsókna sem kölluð eru lýðvísindi (e. Citizen Science) en eins og nafnið vísar til þá eru þau vísindi skilgreind þannig að almenningur safnar og greinir gögn sem tengjast náttúrunni, oftast sem hluti af samstarfsverkefni með vísindafólki.

Hafrannsóknastofnun og Matís eru í samstarfi við teymi Ross, með fulltingi BioProtect verkefnisins sem styrkt var árið 2024 af ESB, til að rannsaka líffræðilegan fjölbreytileika í hafinu umhverfis Ísland. Hlutverk BioProtect verkefnisins er að þróa verkfæri til að vernda og endurheimta vistkerfi og líffræðilegan fjölbreytileika til að ná markmiðum COP22, svo sem að tryggja verndun 30% af hafinu okkar fyrir árið 2030.

Eitt af þessum tækjum er umhverfis DNA-sýnistaki (eDNA). eDNA er erfðaefni sem fellur til af lífverum á búsvæði þeirra í formi frumna, slíms, saurs eða kynfrumna. Þessu erfðaefni er hægt að safna með því að sía vatnssýni úr sjónum á sérstakar síur sem síðan eru fluttar á DNA rannsóknarstofu til mögnunar. Þegar erfðaefnið hefur verið magnað bera vísindamenn saman raðirnar sem fást úr greiningunni við mismunandi gagnagrunna heimsins til að bera kennsl á lífverurnar (frá ættkvísl til tegunda) sem voru til staðar í hafinu.

Ein af ástæðum þess að samstarfsaðilar BioProtect vilja vinna með Ross er að hafið er víðfeðmt og vísindamenn eru ekki stöðugt á sjó til að fylgjast með flutningi og/eða gangverki lífvera í hafinu. Það er kostnaðarsamt og krefst mannafla. Með því að vinna með almenningi og kynna til leiks verkfæri eins og eDNA sýnistakans getur BioProtect safnað gögnum sem annars hefðu ekki verið tiltæk.

Ross teymið safnar einnig vatnssýnum fyrir vísindamenn frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Viktoríu (Kanada) og Hafrannsóknastofnun, sem nýtur stuðnings Future Oceans International til að greina og kortleggja dreifingu örplasts í hafsvæðinu umhverfis Ísland. Að auki mun Ross vinna með Hafrannsóknastofnun við að bera kennsl á sjávarspendýr með ljósmyndaauðkenningaraðferðum og leggja sitt af mörkum til gagnabanka hvala ljósmynda (ISMN – IS Megaptera Novaeangliae catalog), auk tegunda skrá Íslands, og sérstaklega skráningu háhyrninga.

Meira um BioProtect verkefnið hér

Icelandic contact persons for the collaboration with Ross on citizen science:
Angel Ruiz Angulo – Microplastic, Christophe Pampoulie – eDNA citizen science, Davið Gíslason – eDNA citizen science and Valerie Chosson – Microplastic, whale migration and photo-ID

Tengill á viðtal við Ross Edgley á Visir.is.  Mynd af honum úr því viðtali er notuð hér á síðunni.
Tengill á viðtal við Ross Edgley á Adventure.com.Mynd af honum úr því viðtali er notuð hér á síðunni.