Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 219 stig í júní 2022 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júní 2022.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 697 samningar, sem þinglýst var í júní 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júní 2022 eru því unnar upp úr 924 leigusamningum sem þinglýst var í júní og júlí 2022.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júní 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð2 herbergi3 herbergi4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes4614330831992490
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar4413337929392598
Kópavogur4164314424792301
Garðabær og Hafnarfjörður5253293824922317
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur4214326826212512
Breiðholt4176300425262360
Kjalarnes og Mosfellsbær418525362446
Suðurnes277219491883
Vesturland205220071896
Vestfirðir16821730
Norðurland nema Akureyri3612157520201200
Akureyri3345237421142108
Austurland1949
Suðurland3789228219111825