Eyþing og SSNV hafa nú opnað viðamikinn gagnagrunn um menningartengda þjónustu á Norðurlandi sem nefnist Menningarbrunnur – Gagnagrunnur um menningarstarf á Norðurlandi. Skráning í grunninn er aðilum að kostnaðarlausu og verður skráning og viðhald upplýsinga í höndum Eyþings og SSNV. Menningarbrunnur – Gagnagrunnur um menningartengda þjónustu á Norðurlandi hlaut styrk úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra sem áhersluverkefni 2015.

Í grunninum er að finna upplýsingar um:

  • Hátíðir
  • Húsnæði
  • Hönnunarhús/gallerí
  • Menningarstofnanir/félög
  • Svæðisbundna fjölmiðla
  • Söfn/setur
  • Tónlist
  • Útilistaverk
  • Vinnustofur listamanna

Menningarbrunnurinn er aðgengilegur á heimasíðu Fjallabyggðar undir Mannlíf – menning og listir.

Frekari upplýsingar um gagnagrunninn veita Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri menningarmála hjá Eyþingi, netfang vigdis@eything.is og Ingibergur Guðmundsson verkefnastjóri hjá SSNV, netfang ingibergur@ssnv.is

Menningarbrunnur – Gagnagrunnur um menningarstarf á Norðurlandi

 

Mynd: Sigurður Ægisson