Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra heldur tónleika í Hvammstangakirkju á morgun, miðvikudaginn 1. maí kl. 15:00.

Stjórnandi kórsins er  Ólafur Rúnarsson og undirleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir.

Á dagskrá verða létt lög sem vonandi koma áheyrendum í sumarskap.

Söngnemendur úr Tónlistarskóla Húnaþings vestra koma einnig fram á tónleikunum. Veislukaffi í safnaðarheimilinu að loknum tónleikum. Aðgangseyrir kr. 2.500, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Verið velkomin og gleðjist með okkur.

Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra