Yfirlýsing stjórnar UÍF vegna sölunnar á Hóli
Íþróttamiðstöðin að Hóli hefur verið seld, þ.e. húsnæði íþróttahreyfingarinnar, ásamt lóðaréttindum. Íþrótta- og útivistarsvæðið í Hólsdal er í eigu Fjallabyggðar sem ber ábyrgð á nýtingu þess. Vel sótt ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar síðasta vor samþykkti samhljóða að setja húsið í söluferli. Í kjölfarið var gert verðmat á húsnæðinu sem hljóðaði upp á 50-60 milljónir. Húsið var auglýst til sölu í ágúst og bárust tvö tilboð. Stjórn UÍF gerði þeim er hærra bauð gagntilboð og eftir viðræður var skrifað undir kaupsamning sem hljóðar upp á 60 milljónir, kaupandinn er Siglóhóll ehf. Ekki hefur verið ákveðið hvernig fjármunum verður ráðstafað en þeir munu nýtast til að efla íþróttastarfið til frambúðar.
Íþróttamiðstöðin að Hóli var gjöf Siglufjarðarkaupstaðar til íþróttahreyfingarinnar í Siglufirði og var ÍBS afhent gjafaafsal þess efnis árið 1969. Blómlegt íþrótta- og félagsstarf var á svæðinu næstu áratugi. Fjöldi manns lagði á sig mikla vinnu við uppbyggingu starfsins og viðhald hússins og endurbætur á því. Er öllum sjálfboðaliðum færðar kærar þakkir fyrir fórnfúst starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Æska Siglufjarðar síðustu áratugi og einnig þeir sem eldri eru eiga þaðan margar góðar minningar.
Tímarnir hafa breyst, skíðasvæðið var fært í Skarðið fyrir þremur áratugum. Við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar ákváðu bæjaryfirvöld að aðal keppnis- og æfingasvæði knattspyrnu skyldi vera í Ólafsfirði. Nýr golfvöllur og golfskáli hafa verið tekin í notkun hinum megin í Hólsdalnum svo og upphitaður og upplýstur sparkvöllur á skólalóð GF fyrir áratug. Sparkvöllurinn er mikið nýttur til knattspyrnuiðkunar og æfinga. Notkun hússins á Hóli hefur því verið mjög lítil undanfarin ár í íþrótta- og félagslegu tilliti. Stöku fundir og viðburðir hafa verið haldnir þar og salernisaðstaða er nýtt á knattspyrnuæfingum á sumrin.
Önnur mjög stór breyta, sem oft gleymist að taka með í reikninginn, sérstaklega hjá brottfluttum sem ekki lifa og hrærast í samfélagi okkar, er barnafjöldinn. Á blómatíma Hóls, frá 1970 – 1990, má ætla að nær 600 börn hafi verið á grunnskólaaldri á Siglufirði þegar mest var. Um 1990 voru börnin tæplega 400 talsins en í dag eru þau um 120. Þrátt fyrir mikla fækkun barna hafa þessi börn úr mörgu að velja þegar kemur að íþrótta- og félagsstarfi. Þau geta æft knattspyrnu, skíði, blak, badminton, jazzdans, stundað hestamennsku, verið á golfnámskeiðum, leikjanámskeiðum og í íþróttaskóla. Misjafnt þó eftir aldursflokkum. Svo er það tónskólinn og félagsmiðstöðin og annað félagsstarf eins og unglingastarf björgunarsveitanna.
Rekstur hússins á Hóli hefur bæði verið tíma- og fjárfrekur. Um árabil fóru t.d. allar lottótekjur og aðrar tekjur, sem áttu að fara í íþróttastarf félaganna, í rekstur Hóls og dugði það þó ekki til. Það voru þó aðeins tvö til þrjú félög sem nýttu húsnæðið að einhverju marki. Þegar íþrótta- og félagsstarf á Hóli var orðið eins lítið og raun ber vitni var tímabært að endurskoða eignarhald íþróttahreyfingarinnar á húsnæðinu.
Húsið hefur verið leigt út til að skapa tekjur en þær hafa aðeins staðið undir rekstri hússins en ekki viðhaldi þess undanfarin ár. Mjög kostnaðarsamar framkvæmdir eru fyrirliggjandi á fasteigninni þrátt fyrir mikla sjálfboðavinnu við viðhald, þrif og umsjón hússins. Tengigangurinn hefur t.a.m. ekki verið tekinn í notkun eftir brunann árið 2013. Skemman þarfnast einnig viðhalds svo og íbúðarhúsið sjálft.
Stjórn UÍF og aðildarfélög telja ekki forsvaranlegt að nýta þá fjármuni sem annars rynnu til aðildarfélaga, til viðhalds og endurbóta á fasteigninni. Skuldsetning með lántöku kom heldur ekki til greina.
Eins og áður segir þá verður Hólssvæðið áfram nýtt af íþróttahreyfingunni og almenningi öllum og liggur því fyrir íþróttahreyfingunni að skoða möguleika á að koma upp hentugri aðstöðu á svæðinu, vonandi í samstarfi við sveitarfélagið, sem myndi gagnast öllum, ásamt því að efla og styrkja blómlegt starf íþróttafélaganna í Fjallabyggð. Góðar minningar um blómlegt starf á Hóli munu þó lifa um ókomna tíð.
Stjórn UÍF