17. júní hátíðardagskrá í Dalvíkurbyggð 2022
08:00 Fánar dregnir að húni – allir fánar á loft!
10:00-17:00 Opið á Byggðasafninu og frítt inn.
Fánasmiðja þar sem börn og fullorðnir geta gert sinn eigin fána. (Athugið að lokað er á bókasafninu þennan dag)
11:00 17. júní hlaupið fer fram á Dalvíkurvelli í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS.
Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega. Fánar í boði fyrir þá sem mæta.
13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
- Ávarp fjallkonunnar
- Hátíðarræða
- Tónlistaratriði
Það spáir karamellurigningu í kringum Berg
Að lokinni hátíðarstund við Berg:
- Hestamennska
- Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.
- Leiktæki í umsjón Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku
- Sápubolti, vatnsrennibraut, hoppukastalar og fleira skemmtilegt.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.
Á milli kl. 13:00-17:00
- Myndlistasýning í Bergi opin frá 12 – 17. G. Ármann sýnir málverk Allir velkomnir.
Á milli kl. 18:30 – 21:00
- Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug.
- Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Allir velkomnir og frítt inn (börn undir 10 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum)
- Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina í umsjón Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar
P.S. við hvetjum síðan alla til að taka forskot á sæluna
Dalvík/Reynir tekur á móti Kormáki/Hvöt á Dalvíkurvelli fimmtudaginn 16. júní kl. 19:15.