Fimm starfsmenn Grunnskóla Fjallabyggðar luku námi hjá Símey og útskrifuðust sem leikskólaliðar – og stuðningsfulltrúar.

Þetta eru þær: Sunneva Guðnadóttir, Hulda Katrín Hersteinsdóttir, Helga Guðrún Sverrisdóttir, Kolbrún Inga Gunnarsdóttir og Vigdís Guðmundsdóttir.

Námið er ætlað þeim sem starfa í leik- og grunnskólum. Nemendur þurfa að vera orðnir 22ja ára hafa að baki að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu af viðkomandi starfssviði.

Nemendur sem ljúka leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú hljóta starfsheitin leikskólaliði og stuðningsfulltrúi. Námið er kennt sem stað- og fjarnám.

Lengd: Um 50 eininga nám á framhaldsskólastigi. Námið er 4 annir.

Skoða á vef Grunnskóla Fjallabyggðar