Á þessari önn eru 505 nemendur við Menntaskólann á Tröllaskaga, eru það heldur færri en á síðustu önn en framleiddar einingar eru þó svipað margar þar sem nemendur taka fleiri einingar að meðaltali.

Flestir nemendur stunda fjarnám við skólann og eru búsettir víðsvegar um landið og nokkrir erlendis.

Kjörnámsbraut er fjölmennasta brautin, en þar velja nemendur þá sérhæfingu sem þeir vilja leggja áherslu á og skipuleggja námið í samráði við námsráðgjafa. Næst fjölmennust er félags- og hugvísindabrautin. Starfsfólk skólans telur tæplega 30 manns og er það sami fjöldi og síðustu ár.