Unglingamót TBS verður haldið um helgina í Íþróttahúsinu á Siglufirði. Mótið er hluti af unglingamótaröð Badmintonsambandsins og gefur stig á styrkleikalista þess.

Alls eru 99 keppendur skráðir til leiks frá 6 félögum, þau eru: BH, Hamar, ÍA, TBR, TBS og Tindastóll.

Keppni hefst báða dagana kl 09:00.

Smellið hér til að sjá niðurröðun og tímasetningar á mótinu.