Lagt er fram erindi stjórnar, meistaraflokksráðs og barna og unglingaráðs Knattspyrnufélags Fjallabyggðar (KF) á 710 fundi bæjarráðs Fjallabyggðar. Í erindinu er þess krafist að fyrirhuguðum framkvæmdum við Ólafsfjarðarvöll verði frestað fram yfir kosningar 2022.

Einnig er í erindinu, því komið á framfæri að forsvarsmenn KF séu tilbúnir að funda með fulltrúum bæjarins til að fara yfir málið. Þá eru lögð fyrir fundinn gögn sem KF sendi í aðdraganda fundar og minnisblöð EFLU verkfræðistofu dags. 18. og 20. september.

Í fyrra minnisblaði EFLU er farið yfir ástæður mistaka sem voru gerð við útreikning verkfræðistofunnar á rekstrarkostnaði gervigrasvalla, hið síðara er minnisblað með samanburði á gervigrasi og náttúrlegu grasi hvað varðar stofnkostnað, rekstrarkostnað, líklega endingu og aðra þætti.

Á fund bæjarráðs mættu fyrir hönd KF, Magnús Þorgeirsson, Örn Elí Gunnlaugsson, Ásgeir Frímannsson og Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson.

Bæjarráð þakkar erindið og gestum fundarins fyrir hreinskiptið samtal um áform sveitarfélagsins sem og starf KF.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að framkvæmdum vegna úrbóta á knattspyrnuvelli í Ólafsfirði verði frestað um óákveðinn tíma.