Síldarunnendur og matgæðingar geta nú tekið þátt í lifandi og fræðandi síldarnámskeiði þar sem sænsku kokkarnir Ted Karlberg og Joakim Bengtsson kenna handbrögðin á bak við hina fullkomnu marineruðu síld. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kynnast þessari sígildu matargerð frá grunni, öðlast innsýn í hefðir og bragðsamsetningar og fara heim með eigið síldarúrval í glerkrukkum.

Þátttakendur fá að búa til þrjár mismunandi útfærslur af síld undir leiðsögn kokkanna. Á námskeiðinu er farið yfir hráefni, krydd, tækni og helstu aðferðir sem skapa góða útkomu. Allt hráefni og áhöld eru innifalin og hver þátttakandi fer heim með þrjár tegundir síldar sem hann útbýr sjálfur.

Námskeiðið verður haldið í dag 25. nóvember og 2. desember klukkan 18. Verðið er 9.900 krónur og hámark 15 manns geta tekið þátt í hvert skipti. Skráning fer fram í síma 467 1604 eða 865 2036 og einnig er hægt að senda póst á kaffi@sild.is

Myndir: facebook / Síldarkaffi