Æsispennandi undanúrslitaleikur í B-deild karla fór fram þegar KF og Höttur mættust. Þar þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um úrslit eftir jafnan og harðan leik þar sem bæði lið sýndu mikinn baráttuvilja.
Höttur komst yfir á 26. mínútu þegar Bjarki Nóel Brynjarsson skoraði mark sem virtist lengi ætla að duga liðinu til að tryggja sér sæti í úrslitum, að því er fram kemur á heimasíðu Knattspyrnudómarafélags Norðurland, kdn.is.
KF lét það þó ekki slá sig út af laginu og jafnaði leikinn síðar með stórkostlegu marki. Jhoel Sarraude átti þá glæsilegt skot af löngu færi, boltinn small í stöngina og þaðan í netið og staðan jöfn.
Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni
Eftir að venjulegum leiktíma lauk án þess að fleiri mörk litu dagsins ljós var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar steig Javon Sample, markvörður KF, heldur betur fram á sviðið og varð hetja Ólafsfirðinga og Siglfirðinga. Hann varði þrjár vítaspyrnur og tryggði KF þannig sæti í úrslitaleik B-deildarinnar.
Myndir teknar af Ármanni Hinrik á kdn.is, þar sem hægt er að skoða fleiri myndir með því að smella hér.
Hér að neðan er hægt að horfa á útsendingu leiksins í heild sinni.









