Í gær, föstudaginn 12 janúar var mikill hátíðardagur er mönnuð lögregluvarðstofa var vígð við hátíðlega athöfn á Hvammstanga. Fjölmenni mætti og fagnaði við þetta frábæra tilefni.

Stöðvarstjóri á Hvammstanga er Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, varðstjóri.

Stöðin sannaði gildi sitt í dag, sem og aðra daga, þar sem stöðvarstjórinn þurfti í útkall vegna umferðarslyss nokkru áður en móttakan hófst.

Mönnun stöðvarinnar skiptir miklu máli hvað varðar bæði sýnileika löggæslu í Húnaþingi vestra sem og styttri viðbragðstíma.

Sjá nánar: Lögreglan á Norðurlandi vestra

Mynd/Lögreglan á Norðurlandi vestra