Hótel Siglunes á Siglufirði hefur tilkynnt að síðasta vikan sem boðið verður upp á hádegishlaðborð hótelsins í vetur verði í vikunni sem fram undan er.
Hádegishlaðborðið hefur verið fastur liður hjá mörgum í vetur og segja forsvarsmenn hótelsins ánægjulegt að hafa séð svo marga gesti koma við og njóta máltíðar á staðnum. Í tilkynningu frá hótelinu er gestum þakkað sérstaklega fyrir frábærar viðtökur síðustu mánuði.
Með hækkandi sól og auknum bókunum fyrir hópa og fleiri gestum á hótelinu þarf að breyta fyrirkomulaginu um sinn og því verður gert hlé á hádegishlaðborðinu þegar næstu viku lýkur.
Forsvarsmenn Hótels Siglunes segjast hlakka til að taka upp þráðinn aftur næsta vetur, en vonast jafnframt til að sjá sem flesta gesti líta við áður en hléið tekur gildi.
Mynd: Facebook / Hótel Siglunes





