Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur sent frá sér nýtt lag sem ber heitið „Hún“ og er nýjasta smáskífan frá Bubba. Bubbi og Friðrik Dór Jónsson syngja lagið.
Lagið var frumflutt í gærkvöldi í sjónvarpsþættinum Vikan með Gísla Marteini, þar sem Bubbi og Friðrik Dór fluttu lagið í dúett við góðar undirtektir áhorfenda í sal. Frumflutningurinn vakti athygli og fékk lagið hlýjar móttökur hjá gestum þáttarins.
Lagið er komið í spilun á FM Trölla.

„Hún“ er rómantísk, rokkskotin ballaða og jafnframt önnur smáskífan af væntanlegri plötu Bubba, sem kemur út síðar á árinu.
Samstarf þeirra vekur athygli enda hvor af sinni kynslóðinni í íslenskri tónlist. Bubbi hefur um áratugaskeið verið einn áhrifamesti lagahöfundur landsins og starfað bæði sem sólólistamaður og með hljómsveitum á borð við Utangarðsmenn og Egó. Friðrik Dór hefur á síðustu árum skipað sér í hóp vinsælustu popptónlistarmanna landsins.
Á þessu ári standa einnig stór tímamót fyrir dyrum hjá Bubba, en hann fagnar 70 ára afmæli í júní.
Með nýju efni og væntanlegri plötu heldur hann áfram að setja mark sitt á íslenskt tónlistarlíf.
Mynd: skjáskot úr Vikunni með Gísla Marteini á RUV





