Í fundargerð 601. fundar Bæjarráðs frá 23.04.2019 er bókað:

6. 1903077 – Malbik 2019 útboð/verðkönnun
Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 15.03.2019 þar sem fram kemur að tilboð í malbikun í Fjallabyggð 2019 voru opnuð mánudaginn 15 apríl.

Eftirfarandi tilboð bárust:
Hlaðbær Colas kr. 57.323.000
Malbikun Norðurlands kr. 48.355.000
Malbikun Akureyrar kr. 34.134.000
Kostnaðaráætlun kr. 38.815.000Deildarstjóri tæknideildar leggur til við bæjarráð að tilboði lægstbjóðanda verði tekið.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Malbikunar Akureyrar sem jafnframt er lægstbjóðandi.